Dauðamenn – Söguleg skáldsaga Fimmtudagur 11.júní
10. apríl 1656 voru tveir feðgar brenndir á báli í Skutulsfirði. Var þeim gefið að sök að hafa ofsótt sóknarprest sinn með göldrum og valdið honum sárum þjáningum, andlegum og líkamlegum. Að dóminum og aftökunni stóðu tveir sýslumenn, Magnús Magnússon á Eyri í Seyðisfirði og Þorleifur Kortsson, sem hvað mest hefur komið við sögu íslenskra galdraofsókna.