Minningar frá Íslandi í vasabroti!
Hrá, ótamin, viðkvæm og ófyrirsjáanleg! Það er það sem gerir íslenska náttúru svo einstaka. Ljósmyndarinn, Rafn Sig, – hefur einbeitt sér að hrárri náttúru Íslands síðan hann var ungur strákur. Wild Iceland bækurnar sýna brot af bestu verkum hans frá síðastliðnum 30 árum. Wild Iceland – South er bók á stærð við stórt póstkort full af einstökum myndum frá hinu stórbrotna landi íss og elda.

Bókin er hluti af bókaflokki sem samanstendur af átta bókum í vasabroti. Hver og ein þeirra einblínir á brot af því besta úr tilkomumikilli náttúru í einstökum hlutum Íslands: Suðurland, Suðvesturland, Reykjavík, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland, Austurland og hálendið.

Fallegar og eigulegar bækur með einstakri sýn af Íslandi. Tungumál aftan á bókunum eru enska, danska, þýska og franska. Kynningartexti er til af öllum bókunum á þessum fjórum tungumálum.

Óvíða á Íslandi er náttúran stórbrotnari en á Suðurlandi enda sá landshluti sem flestir ferðamenn sækja heim. Fallegir fossar, miklar strendur, spúandi hverir, virk eldfjöll og mikilfengir jöklar. Sumar af fegurstu náttúruperlum Íslands eru í fjöllunum meðfram ströndinni og í uppsveitum vesturhlutans. Jöklum prýtt fjalllendið býr yfir einum helstu eldfjöllum og gossprungum landsins. Mikinn jarðhita er að finna á svæðinu og marga skemmtilega þéttbýliskjarna.