Hugljúf barnabók, úr hugarfylgsnum listakonunnar Línu Rutar, um furðuverurnar Núa og Níu.

Lengst úti á spegilsléttu hafi er undurfögur töfraeyja en þar búa Núi og Nía ásamt vinum sínum, í sátt og samlyndi. Á eyjunni er fjörugt líf, því ófyrirsjáanleg ævintýri gerast þar á hverjum degi. Sjóræninginn heimtufreki, Stinni staurfótur, er jafnan ekki langt undan og dag einn komast Núi og Nía í hann krappan þegar sjóræninginn kemur siglandi á risaregnhlíf og reynir að stela skýi frá eyjaskeggjum.

Loksins er ævintýraheimur Línu Rutar orðin að veruleika en hún hefur unnið að þessari skemmtilegu hugmynd um nokkurra ára skeið. Í samstarfi við Þorgrím Þráinsson sem ljær fallegum myndum hennar orð, lifnar ævintýrið við. Ensk þýðing eftir Julian Meldon D’Arcy.